**!!Snæbjört!!**

** Þetta reddast elskurnar mínar!!!.. ;) **

28.10.2008 00:24:12 / snæbjört

Eða það.....

Halló!

Veit ekki alveg afhverju ég er að skrifa hérna inn, en þar sem að ég fæ ekki frið fyrir Sólbjörtu þá er eins gott að skrifa pínu. Ég var reyndar búinn að ákveða að hætt með þessa síðu en þetta er bara fyrir þig Sólbjört. Já Lillý ég skal senda þér myndir (þar að segja ef að þú ert ekki búinn að fá einhverjar) þegar að ég kem þeim inn í tölvuna en það er smá tækni vandamál í gangi.

Það er svo ekki mikið að frétta héðan. Nema þá eina helst að ég get ekki beðið eftir jólunum..... Og mér langar svo að skreyta að ég iða í skinninu. En það er víst ennþá smá bið í það. Því miður!!!.... En reyndar miðað við hvað tíminn líður hratt þá verða jólin kominn áður en ég veit af. Annað er nú ekki að frétta allavega ekki á þessu heimili. Svo að ég bið að heilsa og bara svo að þið vitið það þá eru ekki miklar líkur á að ég skrifi aftur, en það er aldrei að vita! Allavega bið að heilsa.


Snæbjört over and out!

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 22:33:36 / snæbjört

Þá er hún mætt!

Jæja það er greinilega komnar 3 vikur síðan að ég skrifaði síðast því að þá voru 3 vikur í að kisan kæmi og viti menn hún er kominn. Og hún er kominn með nafnið Frigg. Svo að það er stuð á heimilinu allir að venjast öllum en það gengur fínt. 
    Ég verð samt sem áður að biðja hana Tinnu afsökunar á að hafa ekki sett inn mynd af henni á afmælisdaginn þann 20 júní en mér vantaði mynd af henni ( góða ) í tölvuna svo hún verður að bíða aðeins en til hamingju með daginn. 
    Annars er nú ekki mikið að frétta hér á þessum bæ nema allt flott. Svo að ég bið að heilsa í bili!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 11:14:29 / snæbjört

Það er svo....

Vá hvað þetta er búið að vera leiðinleg vika. En ég er búinn að sitja veik heima síðan á laugardag. Ég fékk einhverja veirusýkingu sem að var bara ógeðsleg. En ég er að verða búinn með þetta sem betur fer. Mér er allavega farið að líða betur LOKSINS!

En jæja þá er komið að skemmtilegu fréttunum. En það er að fara að bættast við nýr fjölskyldumeðlimur eftir 3 vikur. Já hún Sólbjört plataði mig í að fá mér kött. En hún kom með eina litla læðu í heimsókn í gær og vá ég var ekki lengi að falla fyrir henni svo að já ein í viðbót. Annars er nú ekki mikið meira að frétta svo að ég bið að heilsa í bili!

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 10:33:05 / snæbjört

Flottar mæðgur!

Bergdís yngri systir mín er víst orðinn 17 ára í dag. Að hugsa sér hvað tíminn líður hratt. En hún er víst kominn á bílprófsaldurinn. Mér finnst eins og ég hafi verið 17 ára fyrir nokkrum dögum og þá var hún nú bara 11 ára! En eins og þið sjáið þá er hún mjög ánægð með þennan árangur :haha:


Svo er það hún elsku mamma en hún átti afmæli þann 24 maí síðastliðinn. Mín verður nú bara yngri með árunum! Enda hörku gella þar á ferð :haha:

Allavega til hamingju stelpur! Frá okkur á Austurgötu 10!

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 23:07:30 / snæbjört

Jamm og jæja

Jæja þá er hún Birna Ármey orðinn 24 ára! Og auðvitað fær hún mynd birta af sér í tilefni dagsins! Til hamingju með þennan áfanga!



» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 00:20:05 / snæbjört

Það er komið að því!!!...

Jæja netið er komið í lag en það er spurning um hvað það verður lengi 8|
En það er komið að því að gera upp nokkrur afmælisbörn!

Í fyrsta lagi er það litla frænka hún Elínbjört en hún varð tveggja ára þann 6 mars. Og svo er það ég sem að varð 23 ára þann 15 mars!



Svo má ekki gleyma apríl börnunum!

Gunnar Ægir 8 apríl.
Jón Agnar 12 apríl.
Rudolf 19 apríl.
Kristín Mjöll 28 apríl.

En svo er það líka Guðlaug, þessi elska átti afmæli þann 14 apríl, og þar sem að þetta er hún sleppur hún ekki við mynd :klikk:



Svo er það AÐALGÆJINN! Hann Birkir en hann átti afmæli þann 27 apríl! Og hann fær einnig mynd þessi elska :haha:



Svo þar hafiði það. Og vill ég óska öllum þessum afmælisbörnum til hamingju :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 11:20:32 / snæbjört

Allt í rugli!

Hellú!
Þetta er sko hætt að vera sniðugt, en netið er búið að vera bilað hjá mér en það er í þriðja skipti á stuttum tíma og núna er það búið að vera alltof lengi :evil: En það fer vonandi að lagast. Þar til að allt er komið í lag! Bið ég að heilsa í bili!

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 12:54:13 / snæbjört

Enn eitt afmælið!

Það er hún Kristín Högna sem að er afmælisbarnið í dag (ásamt öðrum væntalega). En ég hef ekki hugmynd hvað hún er gömull en örruglega ekki mikið yfir tvítugt hahaha..... :haha: Allavega til hamingju með afmælið mamma 2.

kv. Snæbjört og co.


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 16:22:12 / snæbjört

Vá hvað var gaman um helgina!

Jæja þá er Þorrablótið á Skildi 2008 búið! Og VÁ!!! hvað var gaman. Ég hef ekki skemmt mér svona vel í langan tíma. Og ekki má gleyma því að nefndin í ár stóð sig rosalega vel. Og ekki má gleyma því að ég var valinn sem varamaður á næsta ári þetta var ekki verra en það. Enda búinn að mæta í 7 ár í röð og þetta er í fyrsta skipti sem að nafnið mitt er nefnt, nokkuð gott, ha ? Mér finnst það. Svo má ekki gleyma frábærum leik hjá Snæfell en þeir urðu bikarmeistarar á sunnudaginn! Bara magnað. Við Dóri fórum á leikinn í höllinni (enda hefðum við ekki látið það spyrjast út að við heðfum misst af honum) og það var bara magnað að sjá þá taka bikarinn :haha: 
    Annars er voðalega lítið að frétta af mér og mínum bara rosalega happy í Svo að ég er að spá í að skrifa meira seinna enda er ég með tvö lítll kríli hjá mér þau Júlíus Már og Elínbjört og það er víst eins gott að sinna þeim.

Svo Snæbjört over and out!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 19:44:27 / snæbjört

Þorrablót á Skildi 23 febrúar.

Jæja þá styttist í ein skemmtilegasta tíma ársins! En það er Þorrablótið á Skildi og eins og allir vita þá er SKYLDUMÆTING að vanda, allavega ætla ég ekki að láta mig vanta frekar en venjulega. Tala nú ekki um þar sem að Dóri er í nefndinni og með honum er ; Nonni Beck, Svava, Nadine, Eyrún, Maggi á Hólum og Hafþór er formaður. Svo að það má búast við þetta verði hörku stuð. Svo allir að mæta.

Annars er ekki mikið að frétta af okkur á Austurgötu 10 nema bara allt gott!

Bið að heilsa í bili! Eða þangað til næst!


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 09:25:24 / snæbjört

Halló

Sorry hvað ég er búinn að vera löt en netið er búið að vera í einhverri vitleysu!

Allavega hann Dóri átti afmæli þann 27 janúar :haha: Kallinn bara orðinn 31 árs.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 00:13:14 / snæbjört

Stórafmæli!!...

VÁ!!!... Hvað tíminn ef fljótur að líða! En hún Katrín Eyland (dóttir Gunnars Már og Eyrúnar) er orðinn eins árs! Ekkert smá stór :haha: En allavega við óskum henni innilega til hamingju með þennan áfanga :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 13:48:47 / snæbjört

Afmæli!

Jæja þá er hann Oddur mágur minn orðinn 29 ára gamall og þar með óskum við hér á Austurgötu 10 honum til hamingju með afmælið :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 20:07:15 / snæbjört

Blablabla.....

Til hamingju Snæfell og stuðnigsmenn með þennan glæsilegan sigur á Njarðvík í kvöld :haha:

Þá er allt orðinn svona nokkurn veginn komið í réttan farveg. Byrjuð að vinna eftir jólafrí, Júlíus Már fer líklega á Leikskólan á mánudaginn (en hann er búinn að vera slappur), svo að þetta er allt að smella saman. Fyrir utan það að maður er latari en andskotinn, en það er reyndar nauðsynlegt annað slagið ;)

En ég ætlaði reyndar að kvarta yfir því enn eina ferðina yfir því að ég er búinn að fá yfir 100 heimsóknir í dag og enginn búinn að kvitta. Svo hvernig væri nú að láta vita af sér?!!???!!....

Allavega bið að heilsa í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 20:50:42 / snæbjört

Fyrsta bull ársins...

Gleðilegt nýtt ár !!!!....

Ég vona að allir hafi átt góð jól og áramót. Ég veit að það var gaman hjá mér og mínum. Við héldum jólin í fyrsta skipti bara 3 (ég, Dóri og Júlíus Már), og það var frábært. Og vitiði hvað mér tókst að elda jólamatinn sem að er stór áfangi sem að ég er rosalega stolt af ;) Ekki skemmdi að ég var í fríi alla jólavikuna. Síðan komu áramótin og það var geðveikt gaman. Við borðuðum öll fjölskyldan heima hjá Sólbjörtu og síðan var djammað fram undir morgun. Þetta var magnað og nýja árið leggst bara rosalega vel í mig og ég vona að það geri það hjá ykkur líka.

Jæja þetta er ágætis bull í bili. Svo ég bið að heilsa í bili!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 38594
Klukkan
Könnun
Hlakkar þér/ykkur til sumarsins?
Já!
10 atkvæði

Nei!
2 atkvæði

Er ekki farinn að hugsa svo langt!
0 atkvæði

Bæði og...
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 12